Ferill 1049. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1528  —  1049. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um sálfræðiþjónustu fyrir Grindvíkinga.

Frá Indriða Inga Stefánssyni.


     1.      Að hve miklu leyti fjármagnar ríkið sálfræðiþjónustu fyrir Grindvíkinga, hvort sem er beint eða í gegnum hjálparstofnanir?
     2.      Hefur farið fram greining á aðgengi viðkvæmra hópa, t.d. barna, aldraðra eða fatlaðra, úr Grindavík að sálfræðiþjónustu til lengri tíma?


Skriflegt svar óskast.